Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri hjá Orkustofnun, sat fyrir svörum í nýjasta þætti Spursmála sem sýndur var í beinu streymi hér á mbl.is kl. 14.
Lagðar voru krefjandi spurningar fyrir orkumálastjóra sem tengjast orkumálum á Íslandi og hver sé að vænta miðað við þá stöðu sem nú er uppi.
Staða orkumála hér á landi hefur um hríð þótt óljós og yfirvofandi orkuskortur í náinni framtíð á raforku og heitu vatni ekki útilokaður.
Forsendur Orkustofnunar um fyrirhugaðar breytingar á raforkulögum um orkusölu hafa hlotið mikla gagnrýni að undanförnu. Ekki síst samhliða þeirri staðreynd að ekki hefur verið hægt að tryggja stórnotendum næga raforku til að halda framleiðsluháttum sínum gangandi með eðlilegum hætti.
Þá hafa hamfarirnar á Reykjanesskaga ekki bætt úr skák. Ljóst er að hraunstreymið ógnar lífæðum orkugjafa á svæðinu og er ástandið nú þegar farið að hafa víðtæk áhrif á heimili og fyrirtæki á Reykjanessvæðinu. Í gær var neyðarstigi almannavarna lýst yfir vegna stöðunnar.
Ekki er hægt að segja að fréttaþurrð hafi einkennt líðandi viku og eðli málsins samkvæmt báru fréttir af hamförunum á Reykjanesskaga helst á góma.
Þau Ari Trausti Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur, og Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri sölu, rekstrar og þjónustu Bláa lónsins, fóru yfir áhrif jarðhræringa á svæðinu og mögulegar sviðsmyndir sem hægt er að teikna upp miðað við það sem nú hefur raungerst á Reykjanesinu; sex eldgos á tæplega þremur árum.
Fylgstu með fróðlegri og líflegri samfélagsumræðu í Spursmálum alla föstudaga á mbl.is kl. 14.