Þrekvirki unnið í gær og í nótt

Unnið hefur verið í alla nótt við tengingu á nýju …
Unnið hefur verið í alla nótt við tengingu á nýju hjáveitulögnina við Njarðvíkurlögnina sem fór í sundur í gær. Mynd/HS Orka

Starfsmenn HS Orku og verktakar eru komnir langleiðina með að tengja nýju hjáveitulögnina við Njarðvíkurlögnina sunnanmegin (við varnargarðinn).

Þetta kemur fram á Facebook-síðu HS Orku en þar segir að unnið hafi verið við báða enda lagnarinnar í alla nótt og ríkir bjartsýni um að það takist að hleypa vatni inn á lögnina þegar líður á daginn eða kvöldið.

„Báðum verkum hefur miðað ágætlega en hafa þó tekið nokkru lengri tíma en áætlað var, meðal annars þar sem lengri tíma tók að tæma lögnina af vatni. Þurfti að gata æðina til að flýta fyrir tæmingu. Fimbulkuldi var á svæðinu í nótt og fór frostið mest í 14 gráður. Aðstæður eru auk þess afar erfiðar við hraunjaðarinn norðanmegin og aðgengi torvelt,“ segir ennfremur í færslu HS Orku á Facebook.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert