Leggja nýja hjáveitulögn yfir hraunið

Hjáveitulögn meðfram Njarðvíkuræðinni fór í sundur í gær.
Hjáveitulögn meðfram Njarðvíkuræðinni fór í sundur í gær. mbl.is/Árni Sæberg

Almannavarnir og HS Orka undirbúa nú lagningu nýrrar hjáveitulagnar fyrir heitt vatn yfir nýja hraunið við Njarðvíkuræðina. Hjáveitulögn meðfram æðinni fór í sundur í gær.

Lagður verður vegur yfir nýja hraunið og suðustöðvar settar upp sitt hvorum megin hrauntungunnar, að því er fram kemur í tilkynningu frá HS Orku. Talið er að leggja þurfi um 600 metra af nýrri lögn.

Nóttin var nýtt til hefja efnisöflun og skipuleggja flutninga á því og er þegar byrjað að keyra nýju lagnaefni á staðinn. Framkvæmdin mun taka nokkra daga og enn er of snemmt að áætla verklok, segir í tilkynningunni.

Framkvæmdin afar umfangsmikil

Vegagerð verður á hendi almannavarna en stórvirkar vinnuvélar munu brjóta hraunið upp, þjappa það niður og leggja malarpúða ofan á þvert yfir hraunið. Fram kemur að fyllsta öryggis verði gætt við framkvæmdina.

HS Orka undirbýr suðuvinnuna sem unnin verður í tveimur framleiðslulínum. Útbúa þarf vinnuplön, flytja suðuvélar á svæðið, setja upp suðutjöld og skipuleggja vaktir svo unnt sé að vinna allan sólarhringinn.

Segir einnig að talsvert efni til framkvæmdanna sé þegar tiltækt í landinu, auk þess sem efni verður flutt inn. Hanna þurfi nýjar millitengingar og hefja smíði á þeim en þær verða nýttar til að tengjast Njarðvíkuræðinni, sem liggur ofanjarðar sitt hvorum megin við hrauntunguna.

Ljóst sé að framkvæmdin er afar umfangsmikil og nokkurn tíma muni taka áður en hægt verður að segja til um möguleg verklok. Allt kapp verði lagt á að vinna verkið eins hratt og kostur er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert