Mesta álagið á kvöldmatartíma

Ljósmynd/HS Veitur

HS Veitur biðla til íbúa á Suðurnesjum að fara sparlega með rafmagn þegar þeir taka til við að elda kvöldmat.

Gögn frá síðustu tveimur sólarhringum sýni að mesta álagið sé þá. Ef álagið er of mikið getur orðið rafmagnslaust. 

Álag á mörgum hverfum hefur verið við þolmörk og í öðrum hverfum hefur orðið útsláttur vegna álags.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert