Myndskeið: Nýr Grindavíkurvegur

Það er vandasamt verk að leggja veg yfir nýtt hraun. Vinnu lauk í nótt og nú rýkur upp úr hinum nýlagða Grindavíkurvegi. 

Blaðamaður og ljósmyndari mbl.is, Viðar Guðjónsson og Eyþór Árnason, voru á ferðinni um framkvæmdasvæðið í dag. 

Nú er unnið að því að tengja nýja hitaveitulögn frá Svartsengi yfir að Fitjum svo heitt vatn komist aftur á í sveitarfélögunum á Reykjanesskaga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert