Fluttu 1.800 tonn af heitu vatni til Suðurnesja

Vatni komið á viðkvæma staði í kerfi HS Veitna á …
Vatni komið á viðkvæma staði í kerfi HS Veitna á Suðurnesjum. Ljósmynd/Veitur

Síðustu tvo sólarhringa hafa um 1.800 tonn af heitu vatni verið flutt milli Hafnarfjarðar og Suðurnesja á tankbílum með það að markmiði að verja lagnakerfið og auðvelda uppkeyrslu kerfisins nú þegar heitt vatn er aftur komið á leiðsluna frá Svartsengi til Njarðvíkur. 

Vatnið var flutt í tíu tankbílum á vegum Veitna, en verkefnið er unnið í samstarfi við HS Veitur og almannavarnir.

Í tilkynningu á vef Veitna kemur fram að í morgun hafi verið búið að fara samtals 134 ferðir á milli Hafnarfjarðar og Suðurnesja. Vatnið var sett  inn á dreifikerfið á þeim stöðum sem rafdreifikerfið var viðkvæmt. Tilgangurinn var að verja kerfin og halda varma í því, viðhalda örlitlu rennsli og þrýstingi  til að draga úr líkum á skemmdum þegar vatni er aftur hleypt á.

Tíu tankbílar hafa verið notaðir síðustu tvo sólarhringa til að …
Tíu tankbílar hafa verið notaðir síðustu tvo sólarhringa til að flytja vatn frá Hafnarfirði á Suðurnes og samtals hafa 1.800 tonn verið flutt í 134 ferðum. Ljósmynd/Veitur

Hefur þessi aðgerð fengið nafnið trukkaveitan, eða tankaveitan, en vatnið er bæði flutt til Reykjanesbæjar og í Voga. Umfang vatnsflutninganna er á við alla heitavatnsnotkun á Hvolsvelli.

„Eftir að ljóst var að íbúar á Suðurnesjum stæðu frammi fyrir heitavatnsleysi bjuggum við til Trukkaveituna eftir að hafa lagt höfuðið í bleyti um hvernig við gætum aðstoðað á skilvirkan hátt. Um kvöldmatarleytið í gær vorum við afhenda um 25-30 l á sekúndu sem er á pari við það sem Hvolsvöllur er að nota. Vatnið var um 70 gráður en það var um 80 gráður í Hafnarfirði sem sýnir að Trukkaveitan virkar betur en við þorðum að vona,“ er haft eftir Hrefnu Hallgrímsdóttur, forstöðumanns hitaveitu Veitna í tilkynningunni.

Auk þessa hafa Veitur meðal annars komið upp varaaflsvélum á viðkvæmum stöðum fyrir rafveitu, en það var einnig gert í samráði við almannavarnir og HS Veitur.

Hrefna Hallgrímsdóttir, forstöðumaður hitaveitu Veitna.
Hrefna Hallgrímsdóttir, forstöðumaður hitaveitu Veitna. Ljósmynd/Veitur
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert