Bæjarstjórn Grindavíkur tekur heilshugar undir sjónarmið fyrirtækja í bænum sem krefjast þess að aðgengi að bænum verði gert reglulegt og fyrirsjáanlegt.
Þetta kemur fram í ályktun bæjarstjórnar Grindavíkur sem var send á lögreglustjórann á Suðurnesjum, almannavarnir, mbl.is og aðra fjölmiðla.
Þar kemur fram að það sé mikilvægt að finna lausnir í aðgengismálum fyrir fyrirtæki sem geta hafið starfsemi fái tækifæri til þess.
„Skorum við á lögreglustjóra Suðurnesja og almannavarnir að vinna að lausn þessara mála,“ segir enn fremur í ályktuninni.
„Ástandið er ekki lengur neyðarviðbragð heldur langvarandi atburður og eru fyrirtæki nú komin að þolmörkum og þurfa þau að hefja verðmætasköpun í stað verðmætabjörgunar.“
Ákall fyrirtækjanna:
„Þó að staðan í Grindavík sé alvarleg þá er stór hluti bæjarins í lagi, og enn þá tækifæri til að halda lífi í fyrirtækjunum þar. Við höfum lært á síðustu vikum og mánuðum að á milli atburða líða einhverjar vikur þar sem náttúran er róleg og tími gefst til að vera í Grindavík.
Öryggi fólks á alltaf að vera í forgrunni, og mikilvægt er að kanna stöðu bæjarins og innviða eftir hvern atburð. En strax að því loknu þarf að gera fyrirtækjum kleift að vinna í bænum frá morgni til kvölds, kl. 7.00-19.00, með öryggisvitund og tilbúnar viðbragðsáætlanir.
Ef bærinn á að eiga möguleika að byggjast upp aftur þá þarf að halda ljósunum á í fyrirtækjunum. Fyrirtæki í Grindavík krefjast þess að aðgengi að bænum verði gert reglulegt og fyrirsjáanlegt, og ef eitthvað vantar upp á öryggisgæslu í bænum þá geta fyrirtækin sjálf lagt lóð á vogarskálarnar.“