Fyrirtæki í Grindavík komin að þolmörkum

„Við höfum lært á síðustu vikum og mánuðum að á …
„Við höfum lært á síðustu vikum og mánuðum að á milli atburða líða einhverjar vikur þar sem náttúran er róleg og tími gefst til að vera í Grindavík,“ segir í tilkynningunni. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Fyrirtæki í Grindavík eru komin að þolmörkum. Mikilvægt er að opna bæinn fyrir aukinni starfsemi. Enn er hægt að halda lífi í fyrirtækjum með því að hefja rekstur meðan náttúran er róleg.“

Þetta kemur fram í tilkynningu sem bæjastjórn Grindavíkur sendir á fjölmiðla fyrir hönd grindvískra fyrirtækja.

Þar segir, að þó að staðan í Grindavík sé alvarleg þá sé stór hluti bæjarins í lagi, og ennþá tækifæri til að halda lífi í fyrirtækjunum þar.

Fyrirtæki í Grindavík krefjast þess að aðgengi að bænum verði …
Fyrirtæki í Grindavík krefjast þess að aðgengi að bænum verði gert reglulegt og fyrirsjáanlegt. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Við höfum lært á síðustu vikum og mánuðum að á milli atburða líða einhverjar vikur þar sem náttúran er róleg og tími gefst til að vera í Grindavík. Öryggi fólks á alltaf að vera í forgrunni, og mikilvægt er að kanna stöðu bæjarins og innviða eftir hvern atburð. En strax að því loknu þarf að gera fyrirtækjum kleift að vinna í bænum frá morgni til kvölds, kl.7:00-19:00, með öryggisvitund og tilbúnar viðbragðsáætlanir,“ segir í tilkynningunni. 

„Ef bærinn á að eiga möguleika að byggjast upp aftur þá þarf að halda ljósunum á í fyrirtækjunum. Fyrirtæki í Grindavík krefjast þess að aðgengi að bænum verði gert reglulegt og fyrirsjáanlegt, og ef eittthvað vantar upp á öryggisgæslu í bænum þá geta fyrirtækin sjálf lagt lóð á vogarskálarnar,“ segir jafnframt. 

Tekið er fram að ákallið sé sent bæjarstjórn Grindavíkur, almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, dómsmálaráðherra, lögreglustjóranum á Suðurnesjum og fjölmiðlum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert