Biðja íbúa að loka gluggum

Slökkvilið á vettvangi við brunann í Fellsmúla.
Slökkvilið á vettvangi við brunann í Fellsmúla. mbl.is/Kristinn Magnússon

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biður íbúa í nágrenni Fellsmúla að loka gluggum.

Slökkviliðið berst enn við eld sem kviknaði þar síðdegis, en fyrst var tilkynnt um eldinn um klukkan hálfsex.

Tekið er fram í tilkynningu lögreglu að mikinn reyk leggi frá vettvangi.

Skilaboðum lögreglu er þá ekki síst beint til þeirra sem búa í fölbýlishúsunum í Fellsmúla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert