Eldurinn breiðist út og sprengingar heyrast

Svo virðist sem eldurinn í iðnaðarhúsnæðinu í Fellsmúla sé tekinn að færast yfir í önnur þakbil.

Eldurinn er nú kominn í þriðja þakbilið af sex í húsinu. Sprengingar eru teknar að heyrast og einnig er ljóst að einhverjir bílar eru að brenna inni.

Eldurinn hefur sótt í sig veðrið frá því fyrr í …
Eldurinn hefur sótt í sig veðrið frá því fyrr í kvöld. mbl.is/BJB

Loka fyrir umferð

Lokað hefur nú verið fyrir umferð um Grensásveg og er slökkviliðið að tengja fleiri brunahana við slöngur sínar.

Slökkviliðið hefur kallað út aukamannskap.

Uppfært:

Frá vettvangi nú í kvöld.
Frá vettvangi nú í kvöld. mbl.is/Arnþór
Reykinn leggur í suðvestur sem sjá má af Miklubraut.
Reykinn leggur í suðvestur sem sjá má af Miklubraut. mbl.is/HMR
Svartan þykkan reyk leggur af eldsvoðanum.
Svartan þykkan reyk leggur af eldsvoðanum. mbl.is/HMR
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert