Óskað var eftir aðkomu slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu í Fellsmúla í dag þar sem var farið að rjúka úr dóti sem þurfti að kæla.
Þetta segir Bjarni Ingimarsson, varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, í samtali við mbl.is, en stórbruni varð í Fellsmúla í gær þegar eldur braust út í bifreiðaþjónustu N1 að Fellsmúla 24.
Aðspurður segir Bjarni eðlilegt að slökkviliðið fari aftur á vettvang til að kæla eftir stóra bruna. Það sé vegna þess að það geti ávallt verið glóð undir brunarústum sem síðan getur rokið úr.
Þegar búið var að kæla í Fellsmúlanum yfirgaf slökkvilið vettvang á ný, en áfram verður fylgst með húsnæðinu.