Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, mun kynna fyrirkomulag um aðgengi að Grindavíkurbæ á morgun. Þangað til verður fyrirkomulagi síðustu fimm vikna haldið.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum.
Þann 13. janúar tók ríkislögreglustjóri ákvörðun um brottflutning úr Grindavík til þriggja vikna og var ákvörðunin síðar framlengd til 19. febrúar. Á meðan hefur lögreglustjórinn á Suðurlandi ekki farið með ákvörðun um aðgengi að svæðinu, en hann tekur nú við því hlutverki á nýjan leik.
Á þessum fimm vikum hefur verið unnið að því að meta hættuna í bænum og nú liggur til að mynda fyrir niðurstaða áhættumats almannavarnadeildar vegna sprunguhættu.
Niðurstaðan er sú að áhættan fyrir dvöl og starfsemi í Grindavík sé ásættanleg meðal annars með hliðsjón af þeim mótvægisaðgerðum sem gripið hefur verið til.
Þrátt fyrir það eru enn til staðar alvarlegar brotalamir í Grindavík og því ljóst að aðgengi mun vera ákveðnum skilyrðum háð, eðli málsins samkvæmt.
Nú er það þó í höndum Úlfars Lúðvíkssonar, lögreglustjóra á Suðurnesjum, að meta hættuna samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hverju sinni og gefa út eða taka ákvörðun um rýmingu sé þess þörf.