Ríkislögreglustjóri hefur falli frá fyrirmælum um brottflutning úr Grindavík. Fellur þar með úr gildi ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum um brottvísun sem síðast var framlengd þann 4. febrúar. Ákvörðunin tekur gildi kl 7 í fyrramálið og gildir til 29. febrúar næstkomandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Úlfari Lúðvíkssyni, lögreglustjóra á Suðurnesjum.
„Með hliðsjón af framansögðu hefur lögreglustjórinn á Suðurnesjum tekið þá ákvörðun að heimila Grindvíkingum og þeim sem starfa Í Grindavík að dvelja og starfa í bænum allan sólarhringinn með vitneskju um neðangreint:
Enn eru hættur á svæðinu í kjölfar eldgoss við Stóra Skógfell og aðstæður innan og utan hættusvæða geta breyst með litlum fyrirvara. Þá geta hættur leynst utan merktra svæða. Land rís í Svartsengi,“ segir í tilkynningu frá Úlfari.
„Gefnir verða út QR kóðar fyrir Grindvíkinga og þá sem starfa í bænum. Gert er ráð fyrir því að þeir gildi til lengri tíma en verið hefur.
Lyklar að íbúum/húsum eru í vörslu viðbragðsaðila en talið er hentugt að halda óbreyttu fyrirkomulagi vegna eftirlits með lagnarkerfum í húsum eitthvað áfram.
Lokunarpóstar verða áfram á Grindavíkurvegi, Nesvegi og Suðurstrandarvegi.
Fjölmiðlafólki verður gert kleift að fara inn í bæinn með sama hætti og íbúar og starfsmenn fyrirtækja. Sækja þarf um QR kóða,“ segir í tilkynningu.
Til að vekja athygli fólks á aðsteðjandi hættum hafa verið settir upp þrír almannavarnalúðrar eða sírenur í Grindavík. Þá er einn slíkur við Bláa lónið og annar við orkuverið í Svartsengi.
Lögreglustjóri á ekki von á því að margir Grindvíkingar kjósi að dvelja í bænum næturlangt. Þeim er það heimilt en lögreglustjóri mælir ekki með því.
Dregið verður úr viðveru viðbragðsaðila í Grindavík en lögregla sinnir lögbundnu eftirliti í bænum eins og verið hefur.
Gagnlegar upplýsingar eru á heimasíðu Grindavíkurbæjar á slóðinni https://grindavik.is/ þá er bent á heimasíðu Veðurstofu Íslands á slóðinni www.vedur.is og heimasíðu almannavarna á slóðinni www.almannavarnir.is
Með vísan til 23. gr. laga um almannavarnir nr. 88/2008 eru takmarkanir ekki aðrar en að framan greinir. Nýtt fyrirkomulag tekur gildi kl. 7 í fyrramálið, þriðjudaginn 20. febrúar 2024 en verður endurskoðað 29. febrúar 2024 að öllu óbreyttu.
Fréttin hefur verið uppfærð