Geta ekki upplýst um endanlega tímalínu

Um einstakt verkefni er að ræða segir í tilkynningu frá …
Um einstakt verkefni er að ræða segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Utanríkisráðuneytið getur ekki upplýst um endanlega tímalínu er varða störf sendinefndar ráðuneytisins við að greiða fyrir för dvalarleyfishafa frá Gasa.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að um einstakt verkefni sé að ræða sem þarfnist sérstakrar skoðunar. 

Mikilvæg aðstoð annarra norrænna ríkja

Undanfarið hefur þriggja manna sendinefnd utanríkisráðuneytisins verið að störfum í Egyptalandi til að greiða fyrir för dvalarleyfishafa með fjölskyldusameiningu frá Gasa.

Verkefnið hefur meðal annars falist í úrlausn praktískra atriða við mögulega fólksflutninga, afhendingu lista dvalarleyfishafa til viðeigandi aðila og samskiptum við fulltrúa fyrrnefndra stjórnvalda. 

Önnur norræn ríki hafa veitt sendinefndinni mikilvægar leiðbeiningar og aðstoð en undanfarnar vikur hafa þau komið ríkisborgurum, og í einhverjum tilvikum dvalarleyfishöfum, yfir landamærin.

Norðurlöndin annast þó ekki framkvæmd slíkra fólksflutninga fyrir Íslands hönd, enda snýr slík aðstoð þeirra aðeins að ríkisborgurum – en enginn íslenskur ríkisborgari er á Gasa. 

Sendinefndin hefur átt í góðu samstarfi við fulltrúa egypskra, ísraelskra og norrænna stjórnvalda á svæðinu.

Vinna einungis eftir diplómatískum leiðum

Fram kemur í tilkynningunni að íslensk stjórnvöld muni einungis vinna eftir diplómatískum leiðum í þessu verkefni.

Fulltrúar stjórnvalda hafa þannig fylgt öllum ferlum sem stofnanir í Egyptalandi og Ísrael fara fram á. 

Í samskiptum við ísraelsk stjórnvöld hefur komið fram að listi íslenskra stjórnvalda sé einstakur fyrir þær sakir að þar sé engan íslenskan ríkisborgara að finna og engan með tvöfalt ríkisfang, heldur eingöngu dvalarleyfishafa.

Af þessari ástæðu megi gera ráð fyrir að málið þarfnist sérstakrar skoðunar af þeirra hálfu. 

Er þetta í samræmi við það sem fram hefur komið í máli íslenskra stjórnvalda um að verkefnið sé einstakt hvað framangreint varðar, en ekki síður þann hlutfallslega fjölda sem hér er um að ræða, segir loks í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert