Um 8% ungmenna á aldrinum 12 til 17 ára notuðu ljósabekk einu sinni eða oftar á síðasta ári.
Þetta kemur fram í niðurstöðum skoðanakönnunar Gallup.
Ekki er marktækur munur á þessari niðurstöðu og niðurstöðu úr síðustu könnun sem var gerð meðal ungmenna árið 2016.
18 ára aldurtakmark hefur verið í gildi frá árinu 2011 á notkun ljósabekkja á Íslandi vegna þess að notkun þeirra fylgir aukin hætta á húðkrabbameini. Hættan er meiri fyrir börn og ungmenni en fullorðna, að því er segir í tilkynningu.
Mælingar á ljósabekkjanotkun ungmenna, 12 til 17 ára, hófust árið 2006 og mældist þá 29% en mælist nú 8%. Hlutfallið hefur því lækkað verulega frá árinu 2006.
Samkvæmt nýju könnuninni eru þeir sem nota ljósabekki fyrst og fremst á aldrinum 15 til 17 ára. Einungis 1% ungmenna á aldrinum 12 til 14 ára höfðu notað ljósabekk á síðastliðnu ári en fyrir 15 til 17 ára var hlutfallið 14%. Sama hlutfall stúlkna og drengja á aldrinum 12-17 ára hafði notað ljósabekk árið 2023.
Þegar niðurstöður ársins 2023 eru bornar saman við niðurstöður frá árinu 2016 sést að þeir sem nota ljósabekki á annað borð fara oftar í ljós en áður. Til dæmis fjölgar þeim sem fara vikulega eða oftar í ljós úr 0,3% í 0,9% og þeir sem fara 1-3 sinnum í mánuði fjölgar úr 0,7% í 2,0%.
Í ár var bætt við spurningu sem snýr að þekkingu ungmenna á hættunni við notkun ljósabekkja. Um 92% ungmennanna eru sammála þeirri fullyrðingu að notkun ljósabekkja getur valdið húðkrabbameini. Þeir sem hafa ekki notað ljósabekk á síðustu 12 mánuðum eru meira sammála þessari fullyrðingu en þeir sem hafa farið í ljós (93% miðað við 73%), að því er segir í tilkynningunni.
„Árið 2019 gáfu norrænu geislavarnastofnanirnar út sameiginlega yfirlýsingu þar sem fólki er ráðlagt frá því að nota ljósabekki. Geislavarnir ríkisins mæla eindregið gegn notkun ljósabekkja, enda fylgir notkun þeirra aukin hætta á húðkrabbameini,” segir jafnframt í tilkynningunni.