Gul viðvörun tekur gildi á hádegi á morgun á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra.
Viðvörunin stafar af hvassviðri úr norðaustan- og norðanátt sem mun ná 13 til 20 m/s. Með því mun fylgja talsverð snjókoma eða skafrenningur, mest á Ströndum.
Samkvæmt spá Veðurstofu íslands mun lægð sigla til norðurs fyrir austan land á morgun og tekur stefnu síðan til vesturs.
Lægðinni mun fylgja mikil úrkoma og líklega mun snjóa talsvert á norðurhluta landsins.
Þá hvessir úr norðri og við það myndast talsvert kóf sem getur valdið samgönguerfiðleikum.