Hraunflæðið úr síðasta eldgosi á Reykjanesskaganum 7.-8. febrúar er næstmest að flatarmáli þegar eldgosin sex sem urðu á svæðinu frá árinu 2021 eru skoðuð. Uppstreymi kviku reyndist mun meira en virtist við fyrstu athugun.
Hraunið rann til vesturs en ekki í austur og þar er töluvert meiri halli í landinu niður á við. Myndaðist þá farvegur nokkuð fljótt og hraunið fór hratt yfir.
Ekki munar ýkja miklu á flatarmáli hraunsins í Fagradalsfjalli 2021 og febrúargosinu í Sundhnúkagígaröðinni á þessu ári en mikill munur er hins vegar á rúmmálinu.
Þetta má sjá í tölum sem komu út úr mælingum nokkrum dögum eftir gos á vegum Landmælinga, Náttúrfræðistofnunar, Jarðvísindastofnunar Háskólans og Veðurstofunnar.
Í Morgunblaðinu í dag birtist kortið með röngum tölum. Voru það mistök blaðsins og er beðist velvirðingar á þeim.