Framkvæmdastjóri Hopp í Reykjavík gagnrýnir að alvarlegt ofbeldisbrot sé nýtt til þess að fjalla um lesti leigubílalöggjafarinnar. Hún kallar eftir því að umræðan verði slitin í sundur og að þolandinn fái frið.
„Nýja löggjöfin mun aldrei stoppa ofbeldismenn, þessi maður hefði alltaf getað framið sitt afbrot sama hvernig lögin hefðu verið,“ segir Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp í Reykjavík, og undirstrikar að umfjallanir um þessi mál fari ekki saman.
Um er að ræða mál leigubílstjóra sem grunaður er um gróft kynferðisbrot gegn konu. Málið átti sér stað í byrjun febrúar og í kjölfarið sendu stéttarfélög leigubílstjóra, B:Í.L.S og Frami, frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að félögin hafi verið búin að vara stjórnvöld við afleiðingum lagabreytinga um leigubílaakstur.
Í samtali við mbl.is segist Sæunn harma að umrætt brot hafi átt sér stað og hefur kallað eftir upplýsingum frá Samgöngustofu um meintan ofbeldismann til að geta gengið úr skugga um að umræddur einstaklingur sé ekki með virkan aðgang í farveitu Hopp.
Hún útskýrir að með breytingum nýju löggjafarinnar, sem tók gildi á síðasta ári, starfi allir leigubílstjórar, sem hafa rekstrarleyfi sem leigubílstjóri á Íslandi, sem sjálfstætt starfandi verktakar en ekki í umboði leigubifreiðastöðvar eða farveitu þó þeir aki fyrir slíkar.
Sæunn segir gríðarlega mikilvægt að Samgöngustofa, sem fer með leyfisveitingar, hafi heimildir til að upplýsa farveitur og leigubílastöðvar, eða vald til að stöðva rekstarleyfi viðkomandi, þannig að hægt sé að taka einstaklinginn úr umferð á meðan málið er til rannsóknar hjá lögreglu.
„Þannig að neytandinn getur þá allavega stólað á að farveitunrnar geti lokað fyrir þá bílstjóra sem eru til rannsóknar hjá lögreglunni,“ segir hún.
Sæunn segir tæknina jafnframt veita upplýsingar um leigubílaferðir og gagnsæi hvað varðar leyfisveitingar. Þrátt fyrir það geti engin tækni tekið fyrir ofbeldishegðun.
Þótt hvorki Samgöngustofa né lögregla hafi upplýst Hopp um meintan ofbeldismann hafi þau hjá Hopp nýtt sér upplýsingar sem fram hafa komið og gengið úr skugga um að viðkomandi sé ekki með virkan aðgang í Hopp-appinu.
Spurð út þá gagnrýni sem nýju lögin hafa sætt og yfirvofandi endurskoðun á þeim svarar Sæunn að brýnt sé að endurskoða þau og það sem fyrst.
Það hafi þó ekkert með meint ofbeldisbrot að gera heldur snúist það um að nýju lögin hafi verið skrifuð til að þjóna því fyrirkomulagi sem var til staðar á sínum tíma í leigubílaakstri.
„Það er alltof seint að skoða þau í byrjun næsta árs. Við erum í stöðugu samtali við Samgöngustofu og ráðuneytið til að benda á þá hluti sem okkur finnst hafa farið úrskeiðis í lögunum. Lögunum sem ganga í raun ekki nógu langt og eru ekki að sinna því hlutverki sem þau átttu að sinna sem var m.a. að fjölga leigubílstjórum í hlutastörfum.“