Breiðfylking stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins og Samtök atvinnulífsins gengu til viðræðna á ný í morgun hjá ríkissáttasemjara. Kröfur breiðfylkingarinnar eru að mestu óbreyttar segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Viðræðum var slitið föstudaginn 9. febrúar fyrir tæpum tveimur vikum. Breiðfylking stéttarfélagana sleit viðræðunum og sögðu ásteytingarsteinninn vera forsenduákvæði um þróun verðbólgu og vaxta.
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir framhaldið ráðast af því hvernig gengur að komast af stað. Ekkert hefur breyst í deilunni síðan viðræðum var slitið en aðilarnir hafa verið í samskiptum bætir hann við.
„Ef við erum heppin og allt gengur vel þá sé ég fyrir mér að við höldum áfram.“
Ragnar Þór segist ekkert vita við hverju hann eigi að búast þegar spurður út í fund dagsins.
„Okkar kröfur eru að mestu óbreyttar. Það er verið að boða til fundar þannig maður reiknar með því að Samtök atvinnulífsins komi með eitthvað að borðinu. Hvað það verður kemur svo í ljós.“
Ragnar Þór segir fund dagsins ráðast alfarið af því hverjar hugmyndir Samtaka atvinnulífsins eru. Sáttasemjari hefur lýst því yfir áður að hann muni ekki voða til fundar nema það sé eitthvað nýtt á borðinu bætir Ragnar við.
„Held að þetta ráðist af því hversu mikið þau eru að nálgast okkur. Ef það er umtalsvert og það er einhver grundvöllur til þess að ræða saman á þeim grunni reikna ég með því að það verði gerð alvarleg atlaga að þessu.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, vonast eftir löngum fundi hjá ríkissáttasemjara í dag.
Eins og áður kemur fram var viðræðum slitið vegna ósættis um forsenduákvæði um þróun verðbólgu og vaxta. Aðspurð um hvort einhverjar breytingar hafi orðið á forsendum segist hún ætla að sjá hvaða tækifæri dagurinn beri með sér.
Þá segir hún breiðfylkinguna vera komna á fundinn með ríkulegan samningsvilja.
„En við vonum auðvitað að Samtök atvinnulífsins komi til móts við okkur.“