Dregur mögulega til tíðinda í næstu viku

Magn kviku sem safnast hafði við Svartsengi áður en fyrri …
Magn kviku sem safnast hafði við Svartsengi áður en fyrri gos hófust hefur verið á bilinu 8 til 13 milljón rúmmetrar. mbl.is/Árni Sæberg

Haldi kvikusöfnun áfram með sama hraða og nú mun magn kviku ná þeim þröskuldi í næstu viku sem talið er að þurfi til að koma af stað næsta kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi. 

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Veðurstofu Íslands.

Þar segir að skjálftavirkni á umbrotasvæðinu norðan Grindavíkur haldi áfram að vera væg. Um 20 smáskjálftar hafi mælst á hverjum sólarhring síðustu daga.

Þá kemur fram, að kvikusöfnun við Svartsengi haldi áfram og hafi hraðinn verið nokkuð stöðugur sem svipi mjög til þess sem hafi sést í aðdraganda síðustu eldgosa.

Hættumat óbreytt

„Atburðarásin sem hófst í lok október 2023 með landrisi við Svartsengi heldur því áfram. Á meðan að kvikusöfnun heldur áfram má búast við nýju eldgosi á sömu slóðum og áður.

Haldi kvikusöfnun áfram með sama hraða og nú mun magn kviku ná þeim þröskuldi í næstu viku sem talið er að þurfi til að koma af stað næsta kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi. Magn kviku sem safnast hafði við Svartsengi áður en fyrri gos hófust hefur verið á bilinu 8 til 13 milljón m3. Verið er að vinna ný reiknilíkön til að fá nánari mynd af því magni sem safnast hefur.

Ekki er talin ástæða til að auka hættustig á svæðinu að svo stöddu og er hættumat Veðurstofunnar því óbreytt frá því síðast,“ segir í tilkynningunni. 

Þá segir, að hættumatið verði uppfært á mánudaginn 26. febrúar og að öllu óbreyttu verði hættustig á nokkrum svæðum hækkað samhliða auknu kvikumagni undir Svartsengi og þar með auknum líkum á eldgosi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert