Fjórar rannsóknir og eitt verkefni fengu styrk úr fyrstu úthlutun Vinnuverndarsjóðs, sem settur var af stað á síðasta ári.
Greint er frá þessu í tilkynningu félags og vinnumarkaðsráðuneytisins.
Sjóðurinn er samstarfsverkefni félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins og Vinnueftirlitsins. Markmið sjóðsins er að hvetja rannsóknir á vettvangi vinnuverndar og að betrumbæta vinnuvernd á íslenskum vinnumarkaði.
Auglýst verður aftur eftir umsóknum um styrki síðar á árinu og verður styrkupphæðin sú sama.
Þær rannsóknir og verkefni sem hljóta styrk að þessu sinni eru:
Frá vinnuklefa til sófans: Áhrif vinnuaðstæðna á líðan starfsfólks - 3 milljónir króna
Rannsókn á vegum Dr. Thamar Heijstra og dr. Guðbjörgar Lindu Rafnsdóttur, prófessora í félagsfræði við Háskóla Íslands.
- Áhrif sjálfvirknivæðingar og fjarvinnu á starfstengda kulnun, starfstengd viðhorf, upplifun og hegðun í formi áforma um starfslok, auk tengsla við fjarvistir og starfsmannaveltu - 2,9 milljónir króna
Rannsókn á vegum Arneyjar Einarsdóttur, prófessors við Háskólann á Bifröst og doktors í mannauðsstjórnun, og Katrínar Ólafsdóttur, dósents í Háskólanum í Reykjavík og doktors við vinnumarkaðshagfræði.
- Áhrif starfsumhverfis hjúkrunarfræðinga á kulnun í starfi - 2 milljónir króna
Rannsókn á vegum Ásdísar Aðalbjargar Arnalds, doktors í félagsráðgjöf og forstöðumanns félagsvísindastofnunnar Háskóla Íslands.
- Heilsueflandi vinnuumhverfi og góð vinnustaðamenning í skólum - 1 milljón króna
Rannsókn á vegum dr. Sigrúnar Gunnarsdóttur, prófessors við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, og dr. Önnu Magneu Hreinsdóttur, aðjúnkts við deild kennslu- og menntunarfræða í Háskóla Íslands
Vinnuvernd og vinnuréttur - fræðsla fyrir nemendur með erlendan tungumála- og menningarbakgrunn - 1 milljón króna
Verkefni á vegum Tækniskólans, skóla atvinnulífsins.