Rýmka tímabundið lánþegaskilyrði Grindvíkinga

Frá íbúafundi Grindvíkinga í Laugardalshöll.
Frá íbúafundi Grindvíkinga í Laugardalshöll. mbl.is/Kristinn Magnússon

Í ljósi sérstakra aðstæðna sem blasa við í Grindavík hefur fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands ákveðið að rýmka tímabundið lánþegaskilyrði þeirra einstaklinga sem áttu íbúðarhúsnæði í Grindavík 10. nóvember 2023.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands en þar segir að hámark greiðslubyrðar verði 40% af ráðstöfunartekjum í stað 35% og hámark veðsetningarhlutfalls verði 85% fyrir þessa einstaklinga við næstu kaup þeirra á íbúðarhúsnæði í stað 80%. Framangreint svigrúm er tímabundið og fellur úr gildi 1. mars 2027.

„Það er mat nefndarinnar að undanþágan sé ekki til þess fallin að hafa teljandi áhrif á viðnámsþrótt lánveitenda og muni því ekki hafa marktæk áhrif á fjármálastöðugleika,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert