Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að rýmka tímabundið lánþegaskilyrði þeirra einstaklinga sem áttu íbúðarhúsnæði í Grindavík 10. nóvember 2023.
Þetta er gert í ljósi sérstakra aðstæðna sem blasa við í Grindavík, að því er segir í tilkynningu.
Hámark greiðslubyrðar verður 40% af ráðstöfunartekjum og hámark veðsetningarhlutfalls verður 85% fyrir þessa einstaklinga við næstu kaup þeirra á íbúðarhúsnæði.
„Það er mat nefndarinnar að undanþágan sé ekki til þess fallin að hafa teljandi áhrif á viðnámsþrótt lánveitenda og muni því ekki hafa marktæk áhrif á fjármálastöðugleika,” segir í tilkynningunni.