Vilja sterkari viðbrögð íslenskra stjórnvalda

Konur fyrir utan sjúkrahús í borginni Rafah í gær syrgja …
Konur fyrir utan sjúkrahús í borginni Rafah í gær syrgja skyldmenni sem lést í loftárás Ísraela. AFP/Mohammed Abed

Forysta mannúðarsamtaka á Íslandi kallar eftir sterkari viðbrögðum íslenskra stjórnvalda vegna átakanna á Gasasvæðinu.

Í tilkynningu segir forystan að stjórnvöld verði að nýta allar mögulegar leiðir, rödd og krafta til að þrýsta á um varanlegt vopnahlé og virðingu fyrir mannréttindum og mannúðarlögum, sem séu fótum troðin fyrir allra augum.

„Stríðið á Gaza er stríð gegn börnum, enginn staður í heiminum er þeim jafn hættulegur. Næringarskortur blasir við, vatnsskortur er nær alger og farsóttir yfirvofandi.  Samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum eiga almennir borgarar alltaf rétt á mannúðaraðstoð og vernd í vopnuðum átökum en öllum er ljóst að þessu er ekki fyrir að fara. Stríðandi fylkingar virða í engu mannréttindi íbúa svæðisins og líf þeirra mun aldrei verða samt aftur, lifi þeir af. Eyðileggingin á Gaza er alger og hvergi er skjól fyrir almenna borgara,” segir í tilkynningunni.

Fram kemur að þeim lögum og reglum sem gildi um mannúðaraðstoð á stríðstímum hafi verið komið á vegna skelfilegra átaka, þar sem almennir borgarar féllu í milljónatali.

„Aðgerðarleysi ríkja heims vegna átakanna á Gaza grefur undan þessum lögum og það skiptir ekki einungis máli fyrir fólkið í Palestínu, heldur fyrir heiminn allan. Spyrja verður um afleiðingar þessa, hvaða mörk setur alþjóðasamfélagið í átökum  sem þessum og hvernig á að framfylgja þeim? Hvað gerist þegar almennir borgarar, þar með talin börn, eiga sér ekkert skjól og fá enga hjálp?” segir einnig í tilkynningunni.

Óskir forystunnar eru ítrekaðar um að íslensk stjórnvöld beiti sér af öllu afli á alþjóðavettvangi til að þrýsta á um:

  • Varanlegt vopnahlé.
  • Öruggan og óhindraðan flutning hjálpargagna inn á Gaza.
  • Frjálsa för íbúa Gaza og öruggt aðgengi að hjálpargögnum og þjónustu.
  • Uppbyggingu innviða sem tryggja hreint vatn, fráveitu, heilbrigðisþjónustu og næringu.
  • Umsvifalausa og skilyrðislausa frelsun allra gísla á Gaza.
  • Áframhaldandi fjárveitingar til hjálparstofnana á Gaza, þar með talið Palestínuflóttamannaaðstoðarinnar (UNRWA).

Undir tilkynninguna skrifa:

Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi

Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar

Hjalti Skaale Glúmsson, framkvæmdastjóri ABC barnahjálpar

Kristín Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands

Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women Ísland

Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children á Íslandi

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert