Samningsfundi breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins lauk um klukkan hálf sex í kvöld. Annar hefur verið boðaður í fyrramálið. Þetta staðfestir Elísabet S. Ólafsdóttir, aðstoðarsáttasemjari í samtali við mbl.is.
Hún segir að annar fundur hafi verið boðaður klukkan níu í fyrramálið.
VR sagði sig frá breiðfylkingunni á föstudaginn en Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, fór hörðum orðum um framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, Sigríði Margréti Oddsdóttur, þann sama dag.
Félög breiðfylkingarinnar hafa fundað stíft um helgina en það eru: Starfsgreinasambandið, Efling og Samiðn.