Guðni og Eliza halda til London

Forsetahjónin Eliza Reid og Guðni Th. Jóhannesson.
Forsetahjónin Eliza Reid og Guðni Th. Jóhannesson. mbl.is/Jónas Erlendsson

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, heldur í dag til Englands. Þar flytur hann meðal annars opin erindi á tveimur viðburðum, í London og í Oxford, auk þess að heimsækja rannsóknarstofnanir á sviði lýðheilsu. Eliza Reid forsetafrú fer einnig til Englands í vikunni og á þar fund með Olena Zelenska, forsetafrú Úkraínu, auk þess að taka þátt í pallborði og flytja fyrirlestur, að því er segir í tilkynningu frá embættinu. 

Dagskrá forseta í London hefst á morgun, þriðjudag, með opnunarerindi á málþinginu  „The Arctic and High North Security.“ Sendiráð Íslands í Bretlandi stendur fyrir málþinginu í samvinnu við RUSI rannsóknarstofnunina og verður þar sjónumbeint að hlutdeild Íslands í heimsstyrjöldinni síðari og þróun öryggismála á Norðurslóðum til dagsins í dag.

Heldur fyrirlestur í Oxford

Samdægurs heldur forseti til Oxford og verður þar heiðursgestur við St. Antony’s College þar sem hann nam sjálfur sagnfræði. Forseti flytur þar opinn fyrirlestur: „Where you stand depends on where you sit. The challenges of being an academic turned head of state“, að því er segir í tilkynningunni. 

Á fimmtudag verður forseti gestur  morgunþáttar sjónvarpsstöðvarinnar CNBC International þar sem hann mun m.a. ræða um alþjóðastjórnmál, loftslagsmál, græn umskipti og öryggi á norðurslóðum.

Þá mun forseti heimsækja The Wellcome Trust sem er góðgerðastofnun um lýðheilsuvísindi. Þar verða forseta kynntar nýjustu rannsóknir sem stofnunin hefur styrkt á sviði lýðheilsu og fær leiðsögn um sýningar sem varpa ljósi á velferð almennings á 21. öld og andlega líðan ungmenna, segir enn fremur. 

Heimsækja Kensington-höll

Næst heldur forseti til Kensington Palace til fundar við fulltrúa stofnunarinnar The Royal Foundation Centre for Early Childhood. Katrín prinsessa af Wales stóð fyrir stofnun hennar árið 2021 og hefur hún meðal annars leitað fanga í norrænum rannsóknum, sem Ísland stóð fyrir, um mikilvægi fyrstu 1000 daga lífsins fyrir geðheilsu og vellíðan ævina á enda.

Á sama tíma á fimmtudag situr Eliza Reid forsetafrú í pallborði á ráðstefnunni Global Soft Power Summit sem fram fer í London. Þar tekur hún þátt í umræðum um óbeint vald maka þjóðhöfðingja ásamt Olena Zelenska, forsetafrú Úkraínu, og Aleš Musar, maka forseta Slóveníu. Fyrir pallborðið mun Eliza eiga fund með Olena Zelenska. Á fimmtudagskvöld kemur forsetafrú fram á viðburði átthagafélagsins Canada Club í London og flytur þar fyrirlestur um jafnréttismál á Íslandi. Forseti sækir fyrirlesturinn, að því er embættið greinir frá. 

Snæða hjá Gísla Matt á Carousel

Á meðan forsetahjón dvelja í London munu þau snæða kvöldverð á veitingastaðnum Carousel þar sem matreiðslumaðurinn Gísli Matt býður upp á íslenska matargerð á svo kölluðum „pop-up“ veitingastað.

Forsetahjón koma aftur til Íslands á föstudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert