Bjarni ræddi við utanríkisráðherra Ísraels

Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra.
Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra átti símafund með Israel Katz, utanríkisráðherra Ísraels, síðdegis í dag þar sem málefni dvalarleyfishafa á Gasa voru til umræðu.

Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að Bjarni óskaði liðsinnis um afgreiðslu á lista yfir dvalarleyfishafa á Gasa. Segir að erindinu var vel tekið af hálfu ísraelska ráðherrans.

Undanfarið hefur sendinefnd utanríkisráðuneytisins verið að störfum í Egyptalandi til að greiða fyrir för einstaklinga með dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar.

„Sendinefndin hefur átt í góðu samstarfi við fulltrúa egypskra, ísraelskra og norrænna stjórnvalda á svæðinu. Þá hefur íslenska sendinefndin átt í reglulegum samskiptum við fulltrúa hóps Íslendinga sem er á eigin vegum í Egyptalandi,“ segir í tilkynningunni. 

Israel Katz utanríkisráðherra Ísraels.
Israel Katz utanríkisráðherra Ísraels. AFP/Ahmad Gharabli

Einstakur listi

Íslensk stjórnvöld sendu stjórnvöldum á svæðinu lista yfir dvalarleyfishafa í fyrri hluta febrúarmánaðar.

„Í samskiptum við ísraelsk stjórnvöld hefur komið fram að listinn sé einstakur fyrir þær sakir að þar sé engan íslenskan ríkisborgara að finna og engan með tvöfalt ríkisfang, heldur eingöngu dvalarleyfishafa. Listinn þarfnist því sérstakrar skoðunar af þeirra hálfu, og hefur því enn ekki verið afgreiddur.“

Þá segir að allt sé til reiðu til að taka á móti dvalarleyfishöfum við landamæri Egyptalands og Gasa, um leið og samþykki fæst fyrir ferðum þeirra yfir landamærin. 

„Fyrir liggur að íslensk stjórnvöld munu eingöngu vinna eftir löglegum diplómatískum leiðum og fylgja þeim ferlum sem ísraelsk og egypsk stjórnvöld gera kröfu um. Ekki er því unnt á þessum tímapunkti að fullyrða frekar um tímalínu málsins,“ segir í tilkynningunni. 

Utanríkisáðherrarnir ræddu einnig um yfirstandandi átök og segir að Bjarni hafi ítrekaði afstöðu Íslands um nauðsyn vopnahlés af mannúðarástæðum, virðingu við alþjóðalög, lausn gísla og óheft aðgengi mannúðaraðstoðar til óbreyttra borgara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert