Móta heildarstefnu í áfengis- og vímuvörnum

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp til að móta heildarstefnu í áfengis- og vímuvörnum en gert er ráð fyrir að hópurinn skili heilbrigðisráðherra niðurstöðum sínum fyrir 1. september.

Kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins að stefnt sé á að taka til forvarna, meðferðar og eftirfylgni, endurhæfingar og lagaumhverfis. Þá verði jafnframt gert ráð fyrir að hún taki mið af mismunandi þörfum ólíkra hópa.

„Brýnt að gera betur“

„Sú stefna sem unnið hefur verið eftir undanfarin ár er frá árinu 2013. Endurskoðun er því tímabær í ljósi margvíslegra breytinga sem orðið hafa á undanförnum árum, hvort sem litið er til samfélagslegra breytinga, viðhorfa til áfengis- og vímuefnavanda eða þekkingar á sviði forvarna og meðferðar. Ég vænti mikils af hópnum því þetta er mikilvægt samfélagslegt málefni og því brýnt að gera betur,“ er haft eftir Willum Þór í tilkynningunni.

Heilbrigðisráðherra skipaði í september í fyrra starfshóp sem vinnur að stefnumótun á sviði skaðaminnkunar ásamt aðgerðaáætlun. 

Er starfshópnum gert í störfum sínum að hafa hliðsjón af vísindum, gagnreyndri þekkingu, klínískum leiðbeiningum og alþjóðlegum stöðlum.

Jafnframt er gert ráð fyrir því að stefnan taki mið af mismunandi þörfum hópa, m.t.t. meðferðar við fíknisjúkdómum, s.s. ungmenna, kvenna, aldraðra, hinsegin fólks og einstaklinga með alvarlegan langvinnan fíknivanda. Þess er jafnframt vænst að starfshópurinn geri tillögur að aðgerðum til að framkvæma stefnuna ásamt kostnaðaráætlun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert