Pétur Jökull Jónasson, sem eftirlýstur var hjá Interpol í tengslum við innflutning í stóra kókaínmálinu svokallaða, hefur verið handtekinn. Hann var handtekinn við komu til Íslands í gær.
Í yfirlýsingu frá lögreglu segir að Pétur Jökull hafi verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald.
„Hann var handtekinn við komuna til landsins í gær og færður samdægurs fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur þar sem fyrrnefndur úrskurður var kveðinn upp,“ segir í yfirlýsingu.
Ekki er komið að því í yfirlýsingu hvar Pétur Jökull hefur haldið sig þar til hann kom til Íslands.
„Eftirlýsingin hjá Interpol var birt að beiðni Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er tilkomin vegna tilraunar til innflutnings á tæplega 100 kg af kókaíni frá Brasilíu til Íslands. Rannsókn á nefndum innflutningi var unnin á vegum Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, lögreglunnar á Suðurnesjum og embætta ríkislögreglustjóra og héraðssaksóknara,“ segir enn fremur í yfirlýsingu.
Grímur Grímsson hjá rannsóknardeild lögreglunnar segir í samtali við mbl.is að Pétur Jökull hafi ferðast sjálfur til Íslands og að hann hafi ekki verið í haldi erlendra yfirvalda til þessa. Hann tjáir sig ekki um það hvaðan Pétur Jökull var að koma.
Þungir dómar féllu yfir öðrum sakborningum í málinu.
Þyngsta dóminn hlaut Páll Jónsson timbursali, en dómur hans var mildaður úr tíu árum í níu ár í Landsrétti. Hann stóð að baki timbursendingunni frá Brasilíu sem tollverðir í Hollandi haldlögðu, en efnin voru falin í sjö trjádrumbum.
Landsréttur mildaði einnig dóma yfir hinum þremur. Birgir Halldórsson, sem hafði hlotið átta ára dóm í héraði, hlaut sex og hálft ár í Landsrétti. Dómur Daða Björnssonar, sem fékk sex ár og sex mánuði í héraði, var mildaður í fimm ár og dómur yfir Jóhannesi Páli Durr var mildaður úr sex árum í fimm ár í Landsrétti.
Fréttin hefur verið uppfærð.