Íslensk stjórnvöld undirrituðu í gær nýjan samstarfssamning um stuðning Íslands við Alþjóðaráð Rauða krossins (International Committee of the Red Cross, ICRC) til næstu þriggja ára. Um er að ræða 30 milljón króna styrk íslenskra stjórnvalda til ICRC árlega á tímabilinu 2024-2026.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
Anna Jóhannsdóttir, staðgengill ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins, undirritaði samninginn fyrir hönd Íslands ásamt Robert Mardini, framkvæmdastjóra ICRC.
„Stuðningur alþjóðaráðsins snýr ekki síst að lagalegri vernd og aðstoð við fórnarlömb vopnaðra átaka á grundvelli mannúðarlaga. Með fyrirsjáanlegum og áreiðanlegum framlögum til næstu þriggja ára leggur Ísland sitt af mörkum til brýnustu mannúðarverkefna stofnunarinnar,“ segir Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra í tilkynningunni.
Þá segir að stofnunin ICRC er skilgreind sem samstarfsaðili í mannúðaraðstoð í stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands fyrir árin 2024-2028.
Auk samningsins sem undirritaður var í dag eiga íslensk stjórnvöld í samstarfi við Rauða krossinn á Íslandi (RKÍ) á sviði mannúðaraðstoðar og þróunarsamvinnu og styðja verkefni ICRC og IFRC (Alþjóðaráð Rauða hálfmánans) gegnum rammasamninga við RKÍ.
Tilkynnt var um 25 m.kr. viðbótarframlag til RKÍ þann 30. janúar sl., vegna viðbragða ICRC við þeirri neyð sem nú ríkir fyrir botni Miðjarðarhafs.