Menningar- og viðskiptaráðherra hefur skipað Guðrúnu Gunnarsdóttur í embætti skrifstofustjóra skrifstofu fjármála og gæða í menningar- og viðskiptaráðuneytinu frá og með 1. mars nk.
Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins en þar segir Guðrún hafi verið valin í embættið að fengnum tillögum ráðgefandi hæfnisnefndar. Fimm umsóknir bárust en skipað er í embættið til fimm ára.
„Guðrún útskrifaðist með B.Sc í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 2013, með M.Acc. í reikningsskilum og endurskoðun í júní 2015 og diplóma í opinberri stjórnsýslu 2019. Hún var sett sem skrifstofustjóri við stofnun menningar- og viðskiptaráðuneytis árið 2022 en starfaði áður sem sérfræðingur á skrifstofu fjárlaga og rekstrar í þáverandi atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.
Guðrún hefur starfað í Stjórnarráðinu undanfarin 11 ár og hefur ríka reynslu af stefnumótunarvinnu, áætlanagerð, rekstri ráðuneyta og gæðamálum með áherslu á samræmingu og einföldun ferla,“ segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.