Kalt vatn sem lekur um Hlíðarnar hefur fundið farveg í minnst tvo kjallara í hverfinu.
Þetta segir Bjarni Ingimarsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, spurður um gang mála á svæðinu. Hann segir að búð sé að skrúfa fyrir kaldavatnið, enn flæði þó mikið vatn um göturnar.
Slökkviliðið vinnur því áfram að því að leiða vatnið frá húsunum, auk þess að dæla vatni úr þeim tveimur kjöllurum sem vatn hefur komist í.
Útkallið barst slökkviliðinu á níunda tímanum í kvöld og var einn dælubíll sendur á vettvang. Bjarni ljóst að slökkviliðið verði eitthvað áfram á vettvangi, eða þangað til Orkuveitan tekur við.