Tilkynnt var um tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2024 nú á sjötta tímanum, en verðlaunin verða afhent í Silfurbergi Hörpu 12. mars og send út beint á RÚV. Flestar tilnefningar þetta árið hljóta Árný Margrét, Elín Hall, ex.girls, Laufey, Mugison og Snorri Hallgrímsson, en þau eru öll tilnefnd til þrennra verðlauna hvert.
Samkvæmt upplýsingum frá skipuleggjendum voru í ár rúmlega 900 tilnefningar sem dreifast yfir alla verðlaunaflokka. Í fyrra voru gerðar talsverðar breytingar á verðlaunaflokkum, sameinað undir stærri flokka og samræmt milli helstu yfirflokkanna. Verðlaunað er fyrir tónlistarflutning, söng, lög/tónverk og hljómplötur eða stærri verk. Nokkur verðlaun eru veitt þvert á alla flokka, s.s eins og fyrir upptökustjórn, myndbönd og viðburði.
Alls er tilnefnt í 20 flokkum. Þessu til viðbótar eru á verðlaunakvöldinu veitt bæði heiðursverðlaun og verðlaunin Bjartasta vonin. Loks er verðlaunað fyrir umslagshönnun, en þau verðlaun eru veitt í samvinnu við Félag íslenskra teiknara á svokölluðum FÍT-verðlaunum sem afhent verða seinna í mánuðinum, en tilnefningar í þeim flokki verða ekki kunngjörðar fyrr en á verðlaununum sjálfum. Alls eru verðlaunin því 23 talsins.
Plata ársins – kvikmynda- og leikhústónlist
- Góðan daginn faggi – Stertabenda
- Knock At The Cabin – Herdís Stefánsdóttir
- Sikadene – Sin Fang
- SILO – Atli Örvarsson
- Skjálfti – Páll Ragnar Pálsson og Eðvarð Egilsson
Plata ársins – önnur tónlist
- BRIDGES II – Ægir
- dinner alone – Árný Margrét
- I Am Weary, Don't Let Me Rest – Snorri Hallgrímsson
- Rofnar – Magnús Jóhann Ragnarsson
- Smurðar fórnir – Silkikettirnir
Plata ársins – djasstónlist
- Farfuglar – Ingi Bjarni Skúlason
- Íslendingur í Uluwatuhofi – Stefán S. Stefánsson og Stórsveit Reykjavíkur
- Innermost – Mikael Máni Ásmundsson
- Stilhed og storm – Sigurður Flosason
- holy ghost of – hist og
Plata ársins – popp, rokk, hipphopp og raftónlist
- heyrist í mér? – Elín Hall
- Verk – ex.girls
- Museums – JFDR
- Bewitched – Laufey
- ÁTTA – Sigur Rós
Plata ársins – sígild og samtímatónlist
- Atli Heimir Sveinsson: The Complete String Quartets – Siggi String Quartet
- Icelandic Works for the Stage – Sinfóníuhljómsveit Íslands
- J.S. Bach: Goldberg Variations – Víkingur Heiðar Ólafsson
- Silva – Bára Gísladóttir
- Meditatio II – Schola Cantorum
Flytjandi ársins – popp, rokk, hipphopp og raftónlist
- CELEBS
- Daniil
- Laufey
- PATRi!K
- Una Torfa
Flytjandi ársins – sígild og samtímatónlist
- Nordic Affect
- Sæunn Þorsteinsdóttir
- Strokkvartettinn Siggi
- Sviðslistahópurinn Óður
- Víkingur Heiðar Ólafsson
Flytjandi ársins – djasstónlist
- Andrés Þór Gunnlaugsson
- Kristjana Stefánsdóttir
- Ari Bragi Kárason
- Davíð Þór Jónsson
- Stórsveit Reykjavíkur
Flytjandi ársins – önnur tónlist
- Árný Margrét
- Magnús Jóhann Ragnarsson
- Mugison
- Nanna Bryndís Hilmarsdóttir
- Salka Valsdóttir (neonme)
Tónlistarmyndband ársins
- „Hún ógnar mér“ – Flott, Leikstjórn: Þura Stína
- „On Your Knees“ – Virgin Orchestra Leikstjórn: Alvin Hugi Ragnarsson
- „SEVER – UNE MISÈRE“ Leikstjórn: Gunnar Ingi Jones og Óttar Ingi Þorbergsson
- „Solarr“ – Talos. Leikstjórn: Máni Sigfússon
- „Waiting“ – Árný Margrét. Leikstjórn: Guðmundur Kristinn Jónsson
Tónlistarviðburður ársins
- Hátíð hirðarinnar – Afmælistónleikar Prins Póló: Minningarsjóður Svavars Péturs Eysteinssonar
- Mugison í Naustahvilft – Mugison
- Ómur aldanna – Hans Jóhannsson
- Sumarjazz á Jómfrúnni – Jakob Einar Jakobsson og Jómfrúin
- Upprásin - Harpa í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík og Rás 2
Upptökustjórn ársins
- Modular Heart – Warmland. Upptökustjórn: Arnar Guðjónsson og Hrafn Thoroddsen
- Verk – ex.girls. Upptökustjórn: Guðlaugur Hörðdal, Guðmundur Arnalds, Gylfi Sigurðsson og Tatjana Dís Aldísar Razoumeenko
- Stropha – Ingibjörg Elsa Turchi. Upptökustjórn: Ingibjörg Elsa Turchi og Ívar Ragnarsson
- I Am Weary, Don't Let Me Rest – Snorri Hallgrímsson. Upptökustjórn: Bergur Þórisson, Cécile Lacharme, Hafsteinn Þráinsson, Martyn Heyne, Snorri Hallgrímsson, Styrmir Hauksson, Viktor Orri Árnason, Þorsteinn Eyfjörð
- Knock at the Cabin – Herdís Stefánsdóttir. Upptökustjórn: Herdís Stefánsdóttir og Úlfur Hansson
Texti ársins
- „Ást & praktík“ – Fannar Ingi Friðþjófsson og Atli Bollason
- „heyrist í mér?“ – Elín Hall
- „Hún ógnar mér“ – Vigdís Hafliðadóttir
- „Smurðar fórnir“ – Bergþóra Einarsdóttir
- „Springur út“ – Andri Ólafsson, Friðrik Dór Jónsson, Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir, Magnús Trygvason Eliassen, Steingrímur Karl Teague
Söngur ársins – djasstónlist
- Rebekka Blöndal
- Kristjana Stefánsdóttir
- Silva Þórðardóttir
- Steingrímur Teague
- Ingibjörg Fríða Helgadóttir
Söngur ársins – sígild og samtímatónlist
- Jóhann Kristinsson
- Benedikt Kristjánsson
- Bryndís Guðjónsdóttir
- Hrólfur Sæmundsson
- Heiða Árnadóttir
Söngur ársins – popp, rokk, hipphopp og raftónlist
- Elín Hall
- JFDR
- Laufey
- Friðrik Ómar
- Una Torfa
Tónverk ársins – djasstónlist
- Íslendingur í Uluwatuhofi – Stefán S. Stefánsson
- Suddenly Autumn – Sunna Gunnlaugs
- The Raccoon and the Dog – Mikael Máni Ásmundsson
- daggermark – Eiríkur Orri Ólafsson, Magnús Trygvason Eliassen, Róberta Andersen
- Springur út – Andri Ólafsson, Friðrik Dór Jónsson, Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir, Magnús Trygvason Eliassen
Tónverk ársins – sígild og samtímatónlist
- COR – Bára Gísladóttir
- Rituals – Anna Þorvaldsdóttir
- Á þessum kyrru dægrum – Tryggvi M. Baldvinsson
- Jörð mistur himinn – Haukur Tómasson
- Liebster Gott wann werd ich sterben? – Hjalti Nordal
Lag ársins – önnur tónlist
- „Godzilla“ – Nanna
- „I Am Weary, Don't Let Me Rest“ – Snorri Hallgrímsson
- „Inside Weather“ – Jelena Ciric
- „Stóra Stóra Ást“ – Mugison
- „Wandering Beings“ – Guðmundur Pétursson
Lag ársins – popp, rokk, hipphopp og raftónlist
- „Hvítt vín“ – Spacestation
- „Manneskja“ – ex.girls
- „Oral“ – Björk og ROSALÍA
- „Parísarhjól“ – GDRN
- „Skína“ – PATRi!K, Luigi