Landsréttur þyngdi í dag dóm yfir Rögnvaldi Þorkelssyni, fyrrverandi eiganda bakarísins Kornsins. Hlaut Rögnvaldur 16 mánaða skilorðsbundinn dóm og var gert að greiða rúmlega 97 milljónir í sekt vegna meiri háttar skattalagabrota í rekstri bakarísins og annarra félaga. Áður hafði hann hlotið 12 mánaða skilorðsbundinn dóm og verið gert að greiða 47,4 milljónir í sekt.
Brot mannsins ná til tímabilsins fram að febrúar 2017, en þá seldi hann félagið til annars eiganda.
Fljótlega eftir söluna 2017 komu upp rekstrarerfiðleikar og stöðvaði bakaríið alla starfsemi sína í desember 2018, en Kornið rak þegar mest var 12 útsölustaði á höfuðborgarsvæðinu og bakarí í Hjallabrekku.
Upphaflega voru þrjú ákærð í málinu. Þar af er Rögnvaldur, sem sá um rekstur félagsins, en hann hafði tekið við fyrirtækinu af foreldrum sínum sem stofnuðu Kornið árið 1981. Þá var einnig kona ákærð, en hún var daglegur stjórnandi félagsins. Að lokum var þriðji maður ákærður, en hann var skráður fyrir félaginu PC-tölvan. Var hlutur hans tekinn út úr málinu fyrir aðalmeðferð og konan var sýknuð í héraði.
Rögnvaldur áfrýjaði dómi sínum hins vegar til Landsréttar.
Í héraðsdómi var hann fundinn sekur um að hafa oftalið rekstrargjöld í bókhaldi Kornsins á árunum 2013-2016 og í öðru félagi upp á 7,3 milljónir. Var það gert með tilhæfulausum reikningum frá PC-tölvunni, en þeir voru upp á samtals 161 milljón á tímabilinu.
Rögnvaldur neitaði sök bæði fyrir Landsrétti og héraði og sagðist hafa starfað „á gólfinu“ hjá fyrirtækinu, en komið að stærri ákvörðunum. Þá sagðist hann í héraði einnig hafa verið eigandi, þótt annar aðili hafi verið skráður eigandi. Kom fram við meðferð málsins að Rögnvaldur hafði ekki viljað vera skráður eigandi vegna skuldamála.
Eigandi PC-tölva vitnaði í málinu gegn Rögnvaldi og sagði hann hafa fengið sig til gefa út reikningana. Þegar búið væri að greiða þá til PC-tölva hefði hann farið og tekið þá út í reiðufé, sjálfur fengið 10%, en skilað restinni í reiðufé til Rögnvaldar. Staðfesti hann að konan hefði ekkert vitað af þessu og að upphæðirnar sem áttu að vera á reikningunum hefðu alltaf komið frá Rögnvaldi.
Sem fyrr segir var Rögnvaldur fundinn sekur í héraði fyrir stórfelld skattalagabrot sem þóttu sýna styrkan og einbeittan brotavilja. Hlaut hann 12 mánaða skilorðsbundinn dóm og var gert að greiða 47,4 milljónir í sekt.
Landsréttur komst að sömu niðurstöðu og sakfelldi hann fyrir að hafa staðið skil á efnislega röngum skattframtölum fyrir Kornið með því að hafa fært til gjalda kostnað á grundvelli tilhæfulausra reikninga frá tveimur félögum og með að hafa staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattskýrslum og offramtalið innskatt á grundvelli tilhæfulausra reikninga frá PC-tölvunni.
Landsréttur staðfesti að Rögnvaldur hafi verið raunverulegur framkvæmdastjóri félaganna og að það væri hafið yfir allan vafa að hann hafi óskað eftir því við félaga sinn, sem síðar vitnaði gegn honum, að gefnir væru út tilhæfulausir sölureikningar þar sem Rögnvaldur fengi 90% í reiðufé af brotunum, en félaginn 10%.
Einnig var hann fundinn sekur um að hafa sjálfur skilað inn efnislega röngum skattframtölum og komist hjá því að greiða tekjuskatt upp á 16,8 milljónir.
Í dómi Landsréttar er honum metið til refsiþyngingar að brot hans hafi verið stórfelld og sýnt einbeittan brotavilja. Hlaut hann 16 mánaða skilorðsbundinn dóm og var sekt hans rúmlega tvöfölduð, eða samtals 97 milljónir.
Þá var Rögnvaldi gert að greiða 11,7 milljónir í sakarkostnað í héraði og 2 milljónir í áfrýjunarkostnað.