Enginn þingmaður Vinstrihreyfingar – græns framboðs myndi komast á þing ef gengið yrði til kosninga í dag, miðað við niðurstöður nýrrar könnunar Þjóðarpúls sem gerð var í febrúar.
Ríkisútvarpið greinir frá niðurstöðunum en þar kemur fram að VG mælist með 4,7% fylgi. Er það fyrir neðan þau fimm prósenta mörk sem eru skilyrði fyrir því að flokkar fái uppbótarþingmenn.
Lækkar fylgi flokksins jafnframt frá síðasta Þjóðarpúlsi þar sem flokkurinn mældist með 5,5% fylgi.
Samkvæmt nýjustu niðurstöðum lækkar fylgi Samfylkingarinnar lítillega milli kannanna, eða úr 30,6% í síðasta Þjóðarpúlsi í 28,2%. Flokkurinn mælist þó enn með mesta fylgið.
Sjálfstæðisflokkurinn bætir jafnframt lítillega við sig fylgi, fer það úr 18,2% í síðustu könnun í 19,9%.
Miðflokkurinn mælist með mesta fylgi síðan í febrúar árið 2020, eða 12,8%.
Þá mælist Framsókn með 8,8% fylgi, Píratar með 8,0%, Viðreisn með 7,5%, Flokkur fólksins með 6,8% og Sósíalistar með 3,5%.