Vísa ásökun skólastjórnenda á bug

Breytingar í skólamálum í Fjarðabyggð eru umdeildar.
Breytingar í skólamálum í Fjarðabyggð eru umdeildar. mbl.is/Sigurður Bogi

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar segir miður að fram hafi komið misvísandi upplýsingar í tengslum við breytingar á skólamálum, sem fela meðal annars í sér sameiningu allra skóla í Fjarðabyggð. Þeir vísa hins vegar ásökunum skólastjórnenda, um að ekkert samráð hafi verið, á bug.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef bæjarins.

Tillagan um breytingarnar voru samþykktar síðastliðinn þriðjudag, en þó ekki með atkvæði eins bæjarfulltrúa í meirihlutanum sem olli því að meirihlutasamstarfið leið undir lok. Skólastjórnendur hafa gefið frá sér tilkynningu þar sem þeir lýsa yfir óánægju með breytingarnar og segja að ekkert samráð hafi verið af hálfu bæjarins við skólastjórnendur.

Starfshópur skipaður í október síðastliðnum 

Í tilkynningu frá Fjarðabyggð segir hins vegar að tillagan hafi farið í gegnum samráðsferli, meðal annars með stofnun starfshóps í október síðastliðnum þar sem sæti áttu fulltrúar skólastjórnenda úr tón-, leik- og grunnskólum.

„Áhersla var lögð á samráð við hagaðila í ferlinu og lagt var upp með það að í hópnum ættu sæti kennara úr leik- og grunnskólum. Sannanlega var þeim boðin slík þátttaka og eftir því gengið,“ segir í tilkynningu bæjarins.

Segir að þegar hugmyndavinna að þeim sviðsmyndum sem starfshópurinn rýndi lá fyrir, hafi bæjarráð tekið málið fyrir og ákveðið að hefja vinnu við stefnumótun á grundvelli þessara sviðsmynda. Var erindisbréf starfshópsins þá uppfært og skipað í hann að nýju.

„Niðurstöður vinnu þess hóps voru svo kynntar skólastjórnendum skólanna í Fjarðabyggð og komu þar fram athugasemdir sem tekið var tillit til við frágang tillagnanna. Fjarðabyggð telur miður að í tengslum við boðaðar breytingar hafi komið fram misvísandi upplýsingar og mun leggja áherslu á áframhaldandi samtal og vandaða upplýsingagjöf,“ segir í tilkynningunni.

Engin óvissa um stefnu bæjarstjórnar

Segir í tilkynningunni að með samþykki bæjarstjórnar á tillögunni síðasta þriðjudag sé stefnan mörkuð.

„Engin óvissa ríkir um vilja bæjarstjórnar til að framkvæma stefnuna og ná þannig fram markmiðum um aukna skilvirkni og samlegð innan skólastofnana ásamt því að halda áfram að styðja við það öfluga starf sem unnið er innan þeirra,“ segir að lokum í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert