Álklæðning er ekki leyfð á skóla

Laugalækjarskóli.
Laugalækjarskóli. mbl.is/sisi

Ekki fékkst leyfi til að klæða suðausturgafl og suðvesturhlið Laugalækjarskóla með sléttri álklæðningu. Skólahúsið nýtur verndar.

Erindið var lagt fram á fundi byggingarfulltrúa Reykjavíkur sem framsendi það til skipulagsfulltrúa.

Í umsögn verkefnastjóra skipulagsfulltrúa kemur fram að hverfið samanstandi af stofnunum og blandaðri íbúðabyggð; stórum og litlum fjölbýlishúsum auk raðhúsa, í módernískum stíl. Samstæður húsa og heildir eru verndaðar með hverfisvernd.

Í deiliskipulagi kemur fram að Leirulækur 2 er með verndun 20. aldar bygginga. Við endurbætur og mögulega stækkun þeirra beri að taka sérstakt tillit til byggingarlistarlegra sérkenna þeirra hvað varðar útlitshönnun, innra skipulag og stærðarhlutföll. Skólinn er teiknaður af Einari Sveinssyni og Kjartani Sveinssyni.

„Að setja klæðningu á hús þar sem ekki var gert ráð fyrir henni í upphafi hefur oft neikvæð áhrif á útlit húss og helstu stíleinkenni geta tapast. Ekki er heimilt að klæða steypt hús sem falla undir verndun 20. aldar bygginga. Það þarf að skoða aðra valkosti við endurgerð húsa sem hæfa byggingarstíl hússins betur,“ segir verkefnastjórinn.
sisi@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert