Hermann Nökkvi Gunnarsson
Allt virkaði eins og það átti að virka af hálfu Vodafone í sms- og símakosningu Söngvakeppninnar. Engar tæknilegar bilanir sem myndu koma í veg fyrir að atkvæði skilaði sér fundust við skoðun.
Þetta segir Sesselía Birgisdóttir, framkvæmdastjóri samskipta hjá Vodafone, í samtali við mbl.is.
Eins og greint hefur verið frá krefst Einar Hrafn Stefánsson, lagahöfundur lagsins Wild West sem Bashar Murad flutti í Söngvakeppninni, sjálfstæðrar rannsóknar á atkvæðagreiðslu keppninnar og að símakosning verði endurtekin.
„Það bara gekk allt eins og það átti að ganga,“ segir Sesselía aðspurð.
Sesselía segir að Vodafone sé búið að afhenda Ríkisútvarpinu öll gögn er varða kosninguna. Spurð því hvernig sé hægt að útskýra myndband sem virðist sýna atkvæði ekki skila sér segir hún:
„Það geta verið margar ástæður fyrir því og erfitt að svara út frá einstaka sögum. Það þarf alltaf að skoða hvert mál. En það er búið að skoða alveg og búið að senda öll gögn, kerfislega virkaði allt eins og það átti að virka.“
Ríkisútvarpið hefur kosningaapp sitt, Rúv stjörnur, til skoðunar eftir að myndskeið af meintum galla við kosningu í einvígi Söngvakeppninnar var birt á Facebook.
Mbl.is hefur ítrekað reynt að ná sambandi við Rúnar Frey Gíslason, framkvæmdastjóra Söngvakeppninnar, og Stefán Eiríksson útvarpsstjóra án árangurs.