Eldgos gæti hafist með mjög stuttum fyrirvara

Líkanreikningar sýna að það magn kviku sem hljóp á laugardaginn …
Líkanreikningar sýna að það magn kviku sem hljóp á laugardaginn úr Svartsengi yfir í Sundhnúkagígaröðinni var um 1,3 milljónir rúmmetra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kvikumagn undir Svartsengi heldur áfram að aukast, sem gæti endað með nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi. Eldgos gæti hafist með mjög stuttum fyrirvara, jafnvel innan við 30 mínútur. Þá er líklegast er að gos komi upp á svæðinu milli Stóra-Skógfells og Hagafells.

Þetta kemur fram í uppfærðri frétt á vef Veðurstofu Íslands um stöðu mála á Reykjanesskaga. 

1,3 milljónir rúmmetra

Þá segir að líkanreikningar sýni að það magn kviku sem hljóp á laugardaginn úr Svartsengi yfir í Sundhnúkagígaröðinni hafi verið 1,3 milljónir rúmmetra.

„Áður var búið að reikna út að um hálf milljón rúmmetra af kviku safnist fyrir undir Svartsengi á sólarhring. Að öllu óbreyttu verður heildarmagn kviku undir Svartsengi orðið um 9 milljónir rúmmetra í lok dags á morgun, þriðjudag,“ segir í tilkynningunni. 

Auknar líkur á nýju kvikuhlaupi

Enn fremur segir að í fyrri atburðum hafi kvika hlaupið þegar heildarmagn kviku sem safnast hafi undir Svartsengi sé á bilinu 8 til 13 milljónir rúmmetra.

„Því eru auknar líkur á nýju kvikuhlaupi og eldgosi þegar því magni hefur verið náð.

Það má hins vegar benda á að eftir endurtekin gos í Fagradalsfjalli þá voru dæmi um að kvika læddist upp á yfirborðið án mikillar skjálftavirkni. Reikna þarf með að það gæti orðið þróunin með virknina á Sundhnúkagígaröðinni,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert