Meiri virkni við Fagradalsfjall

Meiri virkni er nú við Fagradalsfjall.
Meiri virkni er nú við Fagradalsfjall. mbl.is/Eyþór

Meiri skjálfsvirkni hefur verið við Fagradalsfjall en yfir kvikuganginum við Sundhnúkagígaröðina síðustu daga. Við Fagaradalsfjall hafa mælst 20 skjálftar síðastliðinn sólarhring. 

Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands segir að kvikumagn undir Svartsengi haldi áfram að aukast. Gæti það endað með nýju kvikuhlaupi jafnvel eldgosi. 

Áframhaldandi landris mælist á GPS-mælum eftir kvikuinnskotið á laugardaginn. Kvikuflæði undir Svartsengi heldur því áfram og líkanreikningar sýna að um hálf milljón rúmmetra af kviku safnast á sólarhring.

Þrýstingur heldur áfram að byggjast upp og auknar líkur eru á nýju kvikuhlaupi yfir í Sundhnúkagígaröðina og jafnvel eldgosi á næstu dögum.

Þykir líklegast að gos komi upp á svæðinu á milli Stóra-Skógfells og Hagafells og gæti það hafist með skömmum fyrirvara, jafnvel innan 30 mínútur. 

Línuritið sýnir samanburð á magni af kviku sem safnast hefur …
Línuritið sýnir samanburð á magni af kviku sem safnast hefur undir Svartsengi áður en kvika hleypur yfir í Sundhnúkagígaröðina. Staða kvikusöfnunar 4. mars er merkt með rauðu. Þar sést einnig hvaða áhrif kvikuhlaupið laugardaginn 2. mars hafði á söfnunarferlið. Þá fór um 1.5 milljónir rúmmetra af kviku yfir í Sundhnúkagígaröðina án þess að eldgos var. Magnið er fengið með líkanreikningum byggt á GPS-gögnum og er háð óvissu. Kort/Veðurstofa Íslands

Talsvart minna en 10. nóvember

Líkanreikningar sýna að um 1,3 milljón rúmmetrar fóru úr kvikuhólfinu undir Svartsengi yfir í kvikuganginn á laugardaginn 2. mars.

Kvikugangurinn sem myndaðist í kjölfarið var um 3 km langur og náði frá Stóra-Skógfelli að Hagafelli.

Rúmmál kviku sem fór inn í kvikuganginn í þessum atburði var því mun minni heldur en í fyrri atburðum þar sem að um 10 milljón rúmmetrar af kviku mynduðu kvikuganginn.

Í heildina hafa um 9,5 milljón rúmmetrar af kviku safnast fyrir í kvikuhólfinu undir Svartsengi síðan í eldgosinu 8. febrúar.

Þrýstingur í kvikuhólfinu heldur áfram að byggjast upp og auknar líkur eru á nýju kvikuhlaupi yfir í Sundhnúkagígaröðina og jafnvel eldgosi á næstu dögum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert