Veitingastaðir Wok On lokaðir

Veitingastaðir Wok On á höfuðborgarsvæðinu og í Hveragerði eru lokaðir.
Veitingastaðir Wok On á höfuðborgarsvæðinu og í Hveragerði eru lokaðir. Skjáskot/Wok On

Veitingastaðir Wok On á höfuðborgarsvæðinu og í Hveragerði eru lokaðir. Tengist lokun staðanna umfangsmikilli lögregluaðgerð sem nú stendur yfir á höfuðborgarsvæðinu og víðar. 

Rök­studd­ur grun­ur leik­ur á man­sali, pen­ingaþvætti, brot­um á at­vinnu­rétt­ind­um út­lend­inga og gruns um skipu­lagða brot­a­starf­semi.

Á meðal þeirrar starfsemi sem lögreglan stöðvaði síðdegis í dag er gistihúsið Kastali Guesthouse. Starfsemi Kastalans og Wok On er í eigu Davíðs Viðarssonar, eiganda Vy-þrifa. Hann er einnig eigandi veitingastaðanna Pho Vietnam. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert