Boða til blaðamannafundar kl. 18

Sigurður Ingi Jóhannsson, Katrín Jakobsdóttir og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir …
Sigurður Ingi Jóhannsson, Katrín Jakobsdóttir og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir verða á fundinum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Boðað hefur til blaðamannafundar í Safnahúsinu kl. 18 í dag þar sem aðgerðir stjórnvalda og sveitarfélaga í tengslum við kjarasamninga verða kynntar.

Á fundinum verða Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, og Heiða Björk Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, að því er segir í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert