Borgarráð samþykkti í dag að taka þátt í yfirlýsingu ríkisins og sveitarfélaga við gerð kjarasamninga til 4 ára. Þátttakan felur meðal annars í sér að halda aftur af hækkunum á gjaldskrám þjónustu sem snýr að barnafjölskyldum og tryggja að skólamáltíðir verði gjaldfrjálsar.
Borgarfulltrúar meirihlutaflokkanna Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins, Pírata og Viðreisnar í borgarstjórn, ásamt borgarfulltrúa Sósíalistaflokksins samþykktu svohljóðandi ályktun á fundi borgarráðs í dag:
„Borgarráð ályktar að Reykjavíkurborg vilji greiða fyrir gerð kjarasamninga til 4 ára sem miða að því að ná niður verðbólgu og vaxtastigi. Reykjavíkurborg telur að hófsamir kjarasamningar með þessu markmiði feli í sér miklar kjarabætur fyrir alla íbúa.
Reykjavíkurborg er því tilbúin að taka þátt í yfirlýsingu ríkisins og sveitarfélaga sem felur í sér að Reykjavíkurborg haldi aftur af hækkun gjaldskráa sem snúa að börnum og barnafjölskyldum, taki þátt í því með stjórnvöldum að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla og tryggi að auki að skólamáltíðir í grunnskólum verði gjaldfrjálsar með 75% greiðsluþátttöku ríkisins út samningstímabilið.“
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins, en þeir telja rétt að leitað verði annarra leiða til að tryggja barnafjölskyldum kjarabætur og velferð, en í gegnum gjaldfrjálsar skólamáltíðir grunnskólabarna. Í bókun borgarfulltrúa sjálfstæðisflokksins segir:
„Fulltrúar Sjálfstæðisflokks telja rétt að Reykjavíkurborg greiði fyrir gerð kjarasamninga til 4 ára með það að markmiði að ná niður verðbólgu og vaxtastigi. Hófsamir kjarasamningar með þessu markmiði munu fela í sér miklar kjarabætur fyrir alla íbúa.
Telja fulltrúar Sjálfstæðisflokks rétt að Reykjavíkurborg taki þátt í yfirlýsingu ríkisins og sveitarfélaga sem felur í sér að Reykjavíkurborg haldi aftur af hækkun gjaldskráa sem snúa að börnum og barnafjölskyldum og taki þátt í því með stjórnvöldum að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla.Fulltrúarnir telja þó rétt að leita annarra leiða til að tryggja barnafjölskyldum kjarabætur og velferð, en í gegnum gjaldfrjálsar skólamáltíðir grunnskólabarna.“
Áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna hafði vikið af fundi þegar málið var tekið á dagskrá, en áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins lagði fram bókun þar sem spurt er hversu mikið eigi að halda aftur af gjaldskrárhækkunum.
„Flokkur fólksins tekur undir þessa ályktun og vonar innilega að skrifað verði undir kjarasamninga sem fyrst. Hins vegar hefði fulltrúi Flokks fólksins vilja sjá í þessari yfirlýsingu hversu mikið á „ halda aftur af gjaldskrárhækkunum“. Hvaða prósentu er er verið að tala um hér? Flokkur fólksins hefur mótmælt harðlega gjaldskrárhækkunum síðustu ár sem verst hafa komið niður á bágstöddum. Gjaldskrárhækkanir hafa auk þess farið beint út í verðlagið.“