Langtímasamningur hefur verið undirritaður milli Samtaka atvinnulífsins og SGS, Eflingar og Samiðnar – breiðfylkingar stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði. Samningurinn gildir frá 1. febrúar 2024 til 31. janúar 2028.
Með undirritun samningsins hefur SA samið við stóran hluta félaga á almennum vinnumarkaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SA.
Í tilkynningunni segir að efnahagsleg óvissa hafi komið hart niður á heimilum og fyrirtækjum undanfarin ár og misseri. Samtök atvinnulífsins og breiðfylkingin tóku því höndum saman um gerð langtímakjarasamninga sem eiga að auka fyrirsjáanleika og stöðugleika í efnahagslífinu, með það að markmiði að ná niður verðbólgu og vaxtastigi.
Stöðugleikasamningurinn styður þessi markmið samningsaðila en af því leiðir að kaupmáttur eykst, aukinn fyrirsjáanleiki verður í efnahagslífinu auk þess sem dregið er úr verðbólguvæntingum og samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs styrkist. Slíkur stöðugleiki er eitt stærsta hagsmunamál heimila og fyrirtækja á óvissutímum, að því er fram kemur í tilkynningunni.
„Samhljómur hefur verið milli samningsaðila um undirstöðuatriði bættra lífskjara, eitt meginmarkmið samninganna er að byggja undir efnahagslegan stöðugleika svo bæði fólk og fyrirtæki geti gert framtíðaráætlanir sem halda. Þessi kjarasamningur markar tímamót og verður stefnumarkandi fyrir framhaldið.
Ný vinnubrögð, góð samskipti og metnaður fyrir sameiginlegum markmiðum hefur skilað því að við erum sammála um svigrúm til launahækkana og hvaða launabreytingar samræmast verðstöðugleika. Launastefna samningsins og forsenduákvæðin bera þess glöggt merki,“ er haft eftir Sigríður Margréti Oddsdóttur, framkvæmdastjóra SA, í tilkynningunni.
Til að undirbyggja stöðugleika er lögð áhersla á langtímasamning sem tekur gildi 1. febrúar 2024 og gildir til fjögurra ára.
Launastefnan byggir á hlutfallslegum launabreytingum með lágmarkskrónutölu þar sem mánaðarlaun taka hlutfallshækkun með lágmarks krónutöluhækkun.
Til viðbótar felur samningurinn í sér kauptaxta og framleiðniauka sem tryggir launafólki hlutdeild í aukinni verðmætasköpun.
„Með kjarasamningum erum við að skuldbinda fyrirtæki til þess að hækka laun í framtíðinni, í því trausti að verðmætaaukningin sem við sköpum sameiginlega standi undir þeirri skuldbindingu. Aukin verðmætasköpun er lykill að bættum lífskjörum,“ er haft eftir Sigríði.
Eins og fram hefur komið settu samningsaðilar sér skýr markmið um að gera langtímakjarasamning sem stuðlar að minnkandi verðbólgu og skapar skilyrði til að stýrivextir lækki.
Forsendur kjarasamningsins taka mið af þessum markmiðum, en til að styrkja bæði forsendur og markmið kjarasamninganna mun sérstök launa- og forsendunefnd taka til starfa.
„Þessi kjarasamningur ryður brautina, en til að markmiðin náist verða allir aðilar vinnumarkaðarins, fyrirtæki landsins, ríki og sveitarfélög að leggjast á eitt og getur enginn skorast undan ábyrgð,“ er haft eftir Sigríði.