Eldin Skoko fékk tveggja og hálfs árs dóm fyrir kynferðisbrot árið 2017, bæði í héraði og Landsrétti. Málið var nýlega tekið upp aftur í Landsrétti að beiðni Skoko. Dæmt var í málinu að nýju í dag og var niðurstaðan sú sama.
Skoko kom að konu í annarlegu ástandi liggjandi í innkeyrslu á Akranesi í júlí 2017 og fór með hana inn í dvalarstað sinn, klæddi hana út fötunum og hafði síðan við hana samræði, að því er segir í dómnum.
Skoko hafi nýtt sér yfirburðastöðu sína gagnvart konunni sem ekki gat spornað gegn verknaðinum sökum ölvunar, máttleysis og slævðrar meðvitundar.
Landsréttur staðfesti 14. september 2018 dóm Héraðsdóms Vesturlands yfir Skoko fyrir að nauðga konunni. Hann var einnig dæmdur til að greiða konunni 1,5 milljónir króna í miskabætur.
Skoko hefur þegar afplánað dóm sinn en hann óskaði eftir endurupptöku á málinu sökum þess að Landsréttur var ólöglega skipaður í málinu gegn honum í Landsrétti árið 2018.
Málið gegn Skoko var af sama meiði og Landsréttarmálið svokallaða en einn hinna fjögurra Landsréttardómara sem dómur Mannréttindadómstóls Evrópu snerti í því máli dæmdi upprunalega í máli Skoko.
Sigríður Á. Andersen þáverandi dómsmálaráðherra skipaði dómara ólöglega í Landsrétt árið 2017 en í febrúar árið 2021 kom fram á Alþingi að Landsréttarmálið hafi þegar kostað íslenska ríkið tæpar 141 milljón krónur.
Skoko var ekki gerð sérstök refsing í endurupptökudómnum og dómurinn óraskaður eins og áður sagði. Allur kostnaður af rekstri endurupptökunnar greiðist úr ríkissjóði.
„Þar með talin málsvarnarlaun verjanda ákærða, Vilhjálms H. Vilhjálmssonar lögmanns, 1.298.800 krónur og þóknun réttargæslumanns brotaþola, Gunnhildar Pétursdóttur lögmanns, 582.660 krónur,“ segir í dómi Landsréttar.