Kvikan var 1,2 km frá yfirborði

Kvikan var 1,2 km frá yfirborði.
Kvikan var 1,2 km frá yfirborði. mbl.is/Eyþór

Kvikugangurinn sem myndaðist 2. mars var um 3 kílómetra langur og er kvikan um 1,2 km frá yfirborði þar sem grynnst er á henni. Nær hún niður á um 3,9 km dýpi. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. 

Í tilkynningunni segir að líkanreikningar sýni að kvikugangurinn nái frá Stóra-Skógfelli að Hagafelli. 

Samkvæmt líkanreikningunum hlupu um 1,3 milljón rúmmetrar af kviku yfir í Sundhnúkagígaröðina í kvikuhlaupinu 2. mars.

Það er mun minna magn kviku en í fyrri atburðum, en líkanreikningar sýna að um 10 milljón rúmmetrar, eða meira, hafi hlaupið úr Svartsengi yfir í Sundhnúkagígaröðina.

Að öllu jöfnu leitar kvikan að auðveldustu leið til yfirborðs og erfitt að fullyrða hvað kom í veg fyrir það í þetta sinn segir í tilkynningunni. 

Um gæti verið að ræða einhverja fyrirstöðu í farvegi kvikunnar, ekki nægt magn eða þrýsting til að opna gossprungu og jafnvel samspil þessara þátta.

Ástæða til að rannsaka kvikuhlaupið frekar

Kvikuhlaupið 2. mars hegðaði sér sumpartinn á annan hátt en fyrri kvikuhlaup og er ástæða til að rannsaka það frekar til að auka enn frekar á skilning á eðli kvikuhlaupa á svæðinu og til að átta sig á hvert framhald atburðanna verður.

Þegar horft er til sögunnar í öðrum eldgosahrinum er ekki óalgengt að kvikuhlaup endi án þess að til eldgoss komi.

Á 10 ára tímabili í tengslum við Kröfluelda 1975 til 1984 urðu þar 20 kvikuhlaup og enduðu 9 þeirra með eldgosi.

Kvikuhlaupin frá Svartsengi yfir í Sundhnúkagígaröðina eru orðin 5 talsins frá því í nóvember 2023 og 3 þeirra hafa endað með eldgosi.

Ekkert er þó hægt að fullyrða á þessu stigi að atburðarásin á Reykjanesskaga komi til með að haga sér eins og umbrotin í Kröflu hvað þetta varðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert