Myndir: Reyna að ráða niðurlögum eldsins

Allt tiltækt slökkvilið Brunavarna Árnessýslu var kallað til.
Allt tiltækt slökkvilið Brunavarna Árnessýslu var kallað til. mbl.is/Óttar

Slökkvilið vinnur hörðum höndum að því að ráða niðurlögum elds sem kviknaði í einbýlishúsi í Hafnartúni á Selfossi fyrr í kvöld. Um er að ræða gamla Hafn­ar­túns­húsið. 

Íbúar í nágrenni hafa verið beðnir um að loka gluggum, en mikill reykur er á svæðinu. Þá hefur verið biðlað til veg­far­anda að halda sig í hæfi­legri fjar­lægð til að trufla ekki störf viðbragðsaðila.

mbl.is/Óttar
mbl.is/Óttar
mbl.is/Óttar
mbl.is/Óttar
mbl.is/Óttar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert