Tveir sóttu um embætti héraðsdómara sem auglýst var hinn 16. febrúar, þau Sindri M. Stephensen dósent og Sólveig Ingadóttir, aðstoðarmaður héraðsdómara.
Dómsmálaráðuneytið auglýsti hinn 16. febrúar í Lögbirtingablaði embætti héraðsdómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur.
Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins. Fram kemur að sett verði í embættið hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara lýkur störfum.
Miðað er við að setningin vari til 28. febrúar 2029.