Illugi varar við söfnun í nafni barna Hrafns

Illugi Jökulsson.
Illugi Jökulsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Illugi Jökulsson varar við því að óprúttnir aðilar hafi gengið í hús og sagst vera að safna peningum fyrir börn Hrafns Jökulssonar rithöfunar, bróður Illuga sem féll frá í september 2022.

Í Facebook-færslu Illuga kemur fram að börn Hrafns hafi heyrt af því að menn gangi í hús eða gefi sig jafnvel að fólki á götum úti og segist vera að safna til styrktar börnunum. Mennirnir biðji ýmist um fé eða selji harðfisk og lakkrís.

„Af því tilefni vilja þau að fram komi að engin slík söfnun er í gangi á þeirra vegum, þau vita ekkert um þetta og þeim væri heldur engin þægð í slíkri söfnun,“ skrifar Illugi.

Sem fyrr segir lést Hrafn 17. september árið 2022, 56 ára að aldri. Hann var giftur Oddnýju Halldórsdóttur og lét eftir sig fjögur börn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert