Notkun ADHD-lyfja eykst enn

Eru konur nú meirihluti fullorðinna notenda.
Eru konur nú meirihluti fullorðinna notenda. mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

ADHD-lyfjanotkun er mikil hér á landi og fer enn vaxandi. Á síðasta ári var notkunin tæplega 64 skilgreindir dagskammtar á hverja þúsund íbúa á dag. Það samsvarar 11,6% aukningu frá árinu áður sem er svipuð aukning og átti sér stað milli áranna 2021 og 2022.

Þetta kemur fram í Talnabrunni, fréttabréfi landlæknisembættisins. Þar er vakin athygli á því að enn fjölgi þeim sem fengu afgreidd ADHD-lyf og eru konur nú meirihluti fullorðinna notenda. Drengir eru enn í meirihluta þegar kemur að notkun þessara lyfja hjá börnum. Á síðasta ári var hlutfallsleg aukning á afgreiddu magni ADHD-lyfja hjá börnum um 6,2% en hjá fullorðnum var aukningin 13%.

„Á árinu 2023 fengu alls 22.878 einstaklingar afgreidd ADHD-lyf, þar af 7.239 börn (<18 ára) og 15.639 fullorðnir. Þetta samsvarar því að 59 af hverjum 1.000 íbúum hafi fengið slíkum lyfjum ávísað árið 2023, sem er um 9% aukning frá árinu áður þegar rúmlega 54 af hverjum 1.000 íbúum var ávísað lyfjum í þessum flokki,“ segir í Talnabrunni.

Hægt er að nálgast umfjöllunina í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert